top of page

Um SIMPLEX

Einfalt bókhald. Skýr samskipti. Persónuleg þjónusta.

Simplex varð til með það að markmiði að gera bókhaldsþjónustu einfaldari og aðgengilegri fyrir einyrkja og smærri fyrirtæki.

​

Áherslan er á gott skipulag, skýr samskipti og persónulega þjónustu þar sem þú veist hvað er að gerast í bókhaldinu þínu.

Bókhald þarf ekki að vera flókið

Fyrir marga smærri rekstraraðila er bókhald eitthvað sem þarf að gera, en ekki endilega eitthvað sem þeir vilja eyða tíma sínum í.

​

Simplex byggir á þeirri hugmynd að bókhaldsþjónusta eigi að vera einföld, skiljanleg og vel skipulögð. Þú átt að geta einbeitt þér að rekstrinum á meðan bókhaldið fær þá athygli sem það þarf.

Sveinn Sigurbjarnarson, stofnandi Simplex

Hver stendur á bak við Simplex?

Ég heiti Sveinn og stend á bak við Simplex.

​

Ég hef bakgrunn og reynslu úr viðskiptum, rekstri og bókhaldi og hef sérstakan áhuga á fjármálum og því hvernig gott utanumhald getur einfaldað rekstur fyrirtækja.

​

Með Simplex er markmiðið að bjóða smærri rekstraraðilum persónulega bókhaldsþjónustu þar sem áhersla er lögð á nákvæmni, aðgengi og skýr samskipti.

Bakgrunnur og reynsla

Bókhaldsþekking:

Nám í fjárhagsbókhaldi á háskólastigi ásamt námi í tölvubókhaldi og hagnýtri reynslu af bókhaldi fyrirtækja.

Reynsla úr rekstri:

Reynsla af fyrirtækjarekstri, fjármálum og daglegu utanumhaldi sem veitir hagnýtan skilning á þörfum smærri rekstraraðila.

Fjármál & miðlun:

Stofnandi Fjármálafrétta, þar sem áhersla er lögð á að gera fjármál, fyrirtækjarekstur og ársreikninga aðgengilega og skiljanlega.

Hvernig vinnum við?

Persónuleg þjónusta

Þú ert í beinu sambandi við þann sem sér um bókhaldið þitt.

Skýr samskipti

Við leggjum áherslu á að útskýra hlutina á einfaldan hátt og láta vita þegar eitthvað þarfnast athygli.

Skipulag & nákvæmni

Bókhaldið er unnið reglulega með áherslu á gott utanumhald og skýra yfirsýn.

Fjármál á mannamáli

Sveinn heldur einnig úti Fjármálafréttum, miðli sem fjallar um fjármál, fyrirtæki og fjárfestingar með áherslu á að gera upplýsingarnar aðgengilegar og skiljanlegar.

Einföldum bókhaldið

Ertu að leita að persónulegri bókhaldsþjónustu fyrir reksturinn þinn? Förum yfir þarfirnar og sjáum hvort Simplex henti þér.

15-20 mínútur - Engin skuldbinding

bottom of page